Elva Hreiðarsdóttir fyrir framan eitt verka sinna á sýningunni. Ljósm. gsp

Sýningin Stiklur opnuð í Byggðasafninu

Myndlistarsýningin Stiklur eftir Elvu Hreiðarsdóttur var opnuð í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla í Stykkishólmi á laugardaginn. Á sýningunni eru verk unnin með blandaðri tækni og innblásin af náttúru og upplifunum Elvu á Snæfellsnesi, meðal annars göngu hennar umhverfis Snæfellsjökul árið 2023.