Fréttir

true

Kristín Eir Íslandsmeistari í fjórgangi á Þyt

Íslandsmóti barna og unglinga í hestaíþróttum fór fram um helgina á mótssvæði Sleipnis á Selfossi. Þar voru frábærar sýningar og aðstæður góðar í blíðskaparveðri. Meðal keppenda var Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Skáney, sem keppir fyrir hmf. Borgfirðing, og gerði hún sannarlega gott mót. Í fjórgangi unglinga varð hún Íslandsmeistari á stóðhestinum Þyt frá Skáney…Lesa meira

true

Utankjörfundar atkvæðagreiðsla hefst í dag

Landskjörstjórn hefur kynnt í island.is að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar, vegna Þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. um hvort hefja eigi að ný viðræður við ESB, hefst í dag hjá sýslumannsembættunum. Þar kemur fram opnunartími, en hér á Vesturlandi er hann þessi: Stykkishólmi, Borgarbraut 2, mánudaga – fimmtudaga kl. 09:00 – 15:00, föstudaga 09:00 -14:00. Borgarnesi, Bjarnarbraut 2,…Lesa meira

true

Mögulega hitaskúrir síðdegis á morgun

Áfram verður norðlæg átt á landinu, þurrt og sólríkt flesta daga út vikuna á Vesturlandi. Undantekning gæti þó orðið á morgun, þriðjudag, þegar lægðardrag teygir sig inn á vestanvert landið. Sídegis gætu því fallið skúrir staðbundið í landshlutanum, jafnvel hellidembur eins og veðurfræðingar orða það, en hlýtt í veðri. Meðfylgjandi mynd var tekin um helgina…Lesa meira

true

Stjarnan sá aldrei til sólar

Karlalið ÍA tók á móti Stjörnunni í sextándu umferð Bestu deildar í fótbolta í gærkvöldi. Eftir nokkra tapleiki í röð var Skagamönnum farið að þyrsta í sigur og uppskáru ríkulega að þessu sinni. Haukur Andri Haraldsson, Viktor Jónsson og Jón Gísli Eyland Gíslason komu heimamönnum í þægilega 3:0 stöðu á fyrstu 26 mínútum fyrri hálfleiks…Lesa meira

true

Leitað að torkennilegu sjófari

Klukkan 18:35 í gærkvöldi voru björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar kallaðar út vegna leitar á sjó nærri Borgarnesi. Sést hafði til torkennilegs hlutar á floti á Borgarvogi norðan við Brákarey, en óljóst hvort um gæti verið að ræða kajak eða annað sjófar. Sjóbjörgunarflokkur frá björgunarsveitinni Brák fór á vettvang sem og félagar þeirra frá Björgunarfélagi Akraness…Lesa meira

true

Jörð skalf á Nesjavöllum í nótt

Jarðskjálfti af stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli klukkan 00:36 í nótt. Fannst hann vel á á öllu suðvestanverðu landinu og meðal annars hér á Vesturlandi, alla leið í Grundarfjörð og Búðardal. Skjálftanum fylgdi minniháttar eftirskjálftavirkni. Þetta er stærsti skjálftinn á Nesjavöllum síðan 1998 þegar skjálfti af stærð 4,6 varð á svipuðum slóðum. Jarðskjálftavirkni er þó…Lesa meira

true

Byggðarráð hvetur til að ráðist verði í tvöföldun vegarins

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt ályktun þar sem fagnað er nýlegri skýrslu Viðskiptaráðs þar sem fram koma tillögur um umbætur á stofnvegakerfi landsins. „Fram kemur að ábatasamasta einstaka verkefnið sé uppbygging leiðarinnar frá Hvalfjarðargöngum til Borgarness. Með því að breyta veginum í 2 + 2 akreinar, tvöfalda Hvalfjarðargöng, gera mislæg gatnamót og…Lesa meira

true

Náttúruverndarstofnun kallar eftir nýju fyrirkomulagi refaveiða

Náttúruverndarstofnun hefur uppfært áætlun sína um refaveiðar, en slík áætlun er að jafnaði gerð á þriggja ára fresti. Stofnunin leggur til að núverandi fyrirkomulag refaveiða verði endurskoðað. Vegna nýliðinna þriggja ára kemur m.a. fram í skýrslunni að árleg veiði á ref var að jafnaði tæplega sjö þúsund dýr. Samningar voru upphaflega gerðir við 57 sveitarfélög…Lesa meira

true

Sjaldan meira legið flatt

Bændur um allt vestanvert landið eru nú af kappi að slá og þurrka hey. Jörðin er æði blaut eftir mikla úrkomu frá því í byrjun júlí og tekur tíma fyrir vatnið að síga niður. En eftir langvarandi óþurrk gafst nú loks færi á heyskap og flestir sem nýta sér það. Sjaldan í seinni tíð hefur…Lesa meira

true

Þverá í Borgarfirði örugg í efsta sætinu

„Það var mikið af fiski í Þverá þegar við voru þar fyrir fáum dögum að veiða; flott vatn og mikið af fiski,“ sagði Skúli Sigurz Kristjánsson í samtali við Skessuhorn. Með honum við veiðar var Sólon Welding og þeir veiddu vel í túrnum. „Sumir hylirnir voru stappfullir af laxi en við fengum 13 laxa á…Lesa meira