
Stjarnan sá aldrei til sólar
Karlalið ÍA tók á móti Stjörnunni í sextándu umferð Bestu deildar í fótbolta í gærkvöldi. Eftir nokkra tapleiki í röð var Skagamönnum farið að þyrsta í sigur og uppskáru ríkulega að þessu sinni. Haukur Andri Haraldsson, Viktor Jónsson og Jón Gísli Eyland Gíslason komu heimamönnum í þægilega 3:0 stöðu á fyrstu 26 mínútum fyrri hálfleiks og þannig var staðan í hléi. Á 66. mínútu náði Andri Rúnar Bjarnason að minnka muninn fyrir Stjörnuna, en það var svo Markús Páll Ellertsson sem skoraði tvívegis fyrir heimamenn, fyrst á 72. mínútu og aftur á 86. mínútu. Undir lok leiks varði Árni Marinó Einarsson markvörður ÍA vítaspyrnu frá nafna sínum Árna Vilhjálmssyni. Lokatölur því 5-1 sigur Skagamanna og gleði þeirra og stuðningsmanna mikil við að fjarlægjast fallsæti deildarinnar.