Kristín Eir og Þytur fagna úrslitunum. Ljósm. eidfaxi.is/ Draumfaramyndataka

Kristín Eir Íslandsmeistari í fjórgangi á Þyt

Íslandsmóti barna og unglinga í hestaíþróttum fór fram um helgina á mótssvæði Sleipnis á Selfossi. Þar voru frábærar sýningar og aðstæður góðar í blíðskaparveðri. Meðal keppenda var Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Skáney, sem keppir fyrir hmf. Borgfirðing, og gerði hún sannarlega gott mót. Í fjórgangi unglinga varð hún Íslandsmeistari á stóðhestinum Þyt frá Skáney með einkunnina 7,03. Eigandi Þyts er afi Kristínar, Bjarni Marinósson. Þetta er í raun ótrúlegur árangur hjá þeim félögum, ekki síst í ljósi þess að Þytur er nú 21 vetra.

Þá varð Kristín í sjöunda sæti í A úrslitum í gæðingaflokki unglinga á Tíma frá Breiðabólstað með einkunnina 7,49. Næst liggur leið Kristínar á Norðurlandamót með landsliðinu í byrjun ágúst.

Öll úrslit á mótinu má sjá á hestafréttavefnum eidfaxi.is