
Mögulega hitaskúrir síðdegis á morgun
Áfram verður norðlæg átt á landinu, þurrt og sólríkt flesta daga út vikuna á Vesturlandi. Undantekning gæti þó orðið á morgun, þriðjudag, þegar lægðardrag teygir sig inn á vestanvert landið. Sídegis gætu því fallið skúrir staðbundið í landshlutanum, jafnvel hellidembur eins og veðurfræðingar orða það, en hlýtt í veðri.
Meðfylgjandi mynd var tekin um helgina neðan við Húsafell í Borgarfirði. Hvítá ber þess merki að mikil snjóbráð er á Eiríksjökli en þá litast áin og stendur undir nafni.