Fréttir

true

Víkingurinn kemur á Snæfellsnes um helgina

Aflraunakeppni sterkustu manna landsins, Víkingurinn 2026, fer fram dagana 24.–26. júlí. Tvær af keppnisgreinum mótsins verða haldnar við Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 25. júlí klukkan 18. Keppnin hefur verið haldin árlega um áratugaskeið og hefur Snæfellsbær jafnan verið einn af keppnisstöðunum. Að þessu sinni munu keppendur etja kappi í bóndagöngu og greininni „kastað yfir vegg“ við kirkjuna.…Lesa meira

true

Unnið að uppbyggingu og eflingu á byggðfestu í Dalabyggð

Dalabyggð hlaut í upphafi árs 23,5 milljóna króna styrki úr byggðaáætlun til tveggja metnaðarfullra verkefna sem ætlað er að efla nýsköpun, atvinnuþróun og byggðafestu í sveitarfélaginu. Sótt var um styrkina í gegnum Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), sem hafa umsjón með verkefnunum í samstarfi við Dalabyggð. Stærri styrkurinn, 13,5 milljónir króna, rennur til uppbyggingar Auðarstofu,…Lesa meira

true

Nýr hoppubelgur fyrir börnin við Baulu í Borgarfirði

Ferðasumarið er nú vel á veg komið og fyrir marga er söluskálinn Baula í Borgarfirði vinsæll viðkomustaður á leið um Vesturland. Nú er enn betri ástæða til að stoppa þar því nýr hoppubelgur fyrir yngstu ferðalangana var tekinn í notkun í síðustu viku og hefur þegar slegið í gegn. „Með stoppi í Baulu geta viðskiptavinir…Lesa meira

true

Baldur á leiðinni heim á Breiðafjörðinn

„Það er okkur ánægja að tilkynna að við höfum nú fengið staðfest að Baldur ljúki störfum í Vestmannaeyjum rétt fyrir miðnætti í kvöld og sigli þaðan heim til Stykkishólms. Baldur mun sigla samkvæmt áætlun frá og með föstudeginum 24. júlí,“ segir Gísli Jóhann Eysteinsson framkvæmdastjóri Ferjuleiða. „Um leið og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum…Lesa meira

true

Borgarverk átti lægsta boð í nýtt hringtorg

Vegagerðin fékk tvö tilboð í verkið „Akrafjallsvegur (51) – hringtorg við Akranes,“ sem opnað var í dag. Framkvæmdin felur í sér gerð hringtorgs á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar, ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi á Akranesi um Lækjarskóga. Jafnframt verður byggð staðsteypt undirgöng undir Akrafjallsveg ásamt nýjum göngu- og hjólastígum sem tengjast undirgöngunum. Verkið er eitt…Lesa meira

true

Deiliskipulag fyrir Þórisstaði auglýst

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi fyrir Þórisstaði og Þórisstaði II. Ákvörðunin var tekin á fundi sveitarstjórnar 9. júlí sl. og byggir á því að meginforsendur skipulagsins liggi þegar fyrir í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032. Auglýsing þar að lútandi birtist í Skessuhorn í dag. Deiliskipulagið nær til um 84 hektara svæðis þar sem gert er…Lesa meira

true

Langþráður sigur Skagamanna á Borgfirðingum í pútti

Skagamenn höfðu betur gegn Borgfirðingum þegar púttkeppni eldri kylfinga fór fram á Garðavelli á Akranesi í gær. Alls tóku 48 keppendur þátt á Akranesi og réð samanlagður árangur sjö bestu keppendanna úrslitum. Akranes sigraði með samtals 475 höggum gegn 482 höggum Borgfirðinga og vann því með sjö högga mun. Þetta var kærkominn sigur fyrir heimamenn…Lesa meira

true

Hún lærði að trúa á sjálfa sig

Guðlaug Ester Hlöðversdóttir lætur draumana leiða sig alla leið á Special Olympics Það er fjör á heimilinu þegar blaðamann Skessuhorns ber að garði í Litla-Laxholti í Borgarhreppi. Hundarnir taka á móti gestinum af forvitni og kötturinn lætur sig ekki vanta. Á móti mér tekur Guðlaug Esther Hlöðversdóttir, ásamt móður sinni, Þorbjörgu Valdísi. Hláturinn er aldrei…Lesa meira

true

Pósthlaupið í Dölum á laugardaginn

Pósthlaupið verður haldið í fimmta sinn laugardaginn 25. júlí þegar hlauparar á öllum aldri leggja leið sína um stórbrotna náttúru Dalanna og sameinast í marki í Búðardal. Hlaupið þykir eitt best geymda leyndarmálið í hlaupaseninunni á Íslandi. Skráning er opin til klukkan 12 föstudaginn 24. júlí, eða þar til uppselt verður í einstakar vegalengdir. „Pósthlaupið…Lesa meira

true

Skagamenn höfðu betur í púttinu

Skagamenn fögnuðu sigri gegn Borgfirðingum í púttkeppni eldri kylfinga sem fram fór á Garðavelli á Akranesi í dag. Samanlagt skor sjö bestu kylfinga réði úrslitum. Nú hafði Akranes betur, með 475 högg gegn 482 Borgfirðinga. „Við erum mjög ánægð með þetta, Borgnesingar hafa unnið okkur undanfarin ár,“ sagði Kolbrún Kjartansdóttir, formaður Púttnefndar FEBAN á Akranesi…Lesa meira