Stjórn púttnefndar FEBAN á Akranesi: Ljósm. óhk

Langþráður sigur Skagamanna á Borgfirðingum í pútti

Skagamenn höfðu betur gegn Borgfirðingum þegar púttkeppni eldri kylfinga fór fram á Garðavelli á Akranesi í gær. Alls tóku 48 keppendur þátt á Akranesi og réð samanlagður árangur sjö bestu keppendanna úrslitum. Akranes sigraði með samtals 475 höggum gegn 482 höggum Borgfirðinga og vann því með sjö högga mun. Þetta var kærkominn sigur fyrir heimamenn en Borgfirðingar hafa haft betur í viðureignum liðanna undanfarin ár.