Baldur á leiðinni heim á Breiðafjörðinn

„Það er okkur ánægja að tilkynna að við höfum nú fengið staðfest að Baldur ljúki störfum í Vestmannaeyjum rétt fyrir miðnætti í kvöld og sigli þaðan heim til Stykkishólms. Baldur mun sigla samkvæmt áætlun frá og með föstudeginum 24. júlí,“ segir Gísli Jóhann Eysteinsson framkvæmdastjóri Ferjuleiða. „Um leið og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem fjarvera Baldurs hefur valdið farþegum og öðrum hagsmunaaðilum á svæðinu, viljum við þakka fyrir þann skilning og þá þolinmæði sem okkur hefur verið sýnd undanfarnar vikur,“ segir Gísli.