Lilja Björg Ágústsdóttir í ungmennahúsi Dalabyggðar. Ljósm. óhk

Unnið að uppbyggingu og eflingu á byggðfestu í Dalabyggð

Dalabyggð hlaut í upphafi árs 23,5 milljóna króna styrki úr byggðaáætlun til tveggja metnaðarfullra verkefna sem ætlað er að efla nýsköpun, atvinnuþróun og byggðafestu í sveitarfélaginu. Sótt var um styrkina í gegnum Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), sem hafa umsjón með verkefnunum í samstarfi við Dalabyggð. Stærri styrkurinn, 13,5 milljónir króna, rennur til uppbyggingar Auðarstofu, nýsköpunar- og þekkingarseturs í Búðardal sem sett var á laggirnar árið 2022. Þar er stefnt að því að betrumbæta aðstöðu fyrir frumkvöðla, atvinnurekendur og sérfræðinga með verklegu vinnurými, prófamiðstöð og námskeiðsrými auk þess sem unnið verður að öflugri fræðslustarfsemi í setrinu.Um þessar mundir er unnið að stefnumótun og hönnun setursins og áformað er að hefja framkvæmdir í haust. Arkitektastofan Gjafi hefur unnið að hönnun rýmisins í samstarfi við Lindu Guðmundsdóttur, verkefnastjóra Dala Auðs, og Lilju Björg Ágústsdóttur sveitarstjóra Dalabyggðar.

Hitt verkefnið „Hver vegur að heiman er vegurinn heim“ hlaut tíu milljóna króna styrk. Markmið þess er að styrkja byggðafestu með því að vekja athygli á þeim tækifærum sem Dalabyggð hefur upp á að bjóða, halda í núverandi íbúa og hvetja brottflutta Dalamenn til að snúa aftur heim. Verkefnið nær bæði til ungmenna og fullorðinna og felur meðal annars í sér þróun kennslu í átthagafræði, starfskynningar, uppbyggingu tengslanets við brott flutt ungmenni, gerð margmiðlunarefnis og fræðslu sem eykur þekkingu íbúa á heimabyggð sinni.

„Þetta eru afar mikilvægir styrkir fyrir Dalabyggð. Annars vegar gefa þeir okkur færi á að byggja upp öflugt nýsköpunar- og þekkingarumhverfi sem getur skapað ný tækifæri til atvinnu og verðmætasköpunar. Hins vegar styðja þeir við markvissa vinnu við að efla byggðafestu, styrkja tengsl fólks við heimabyggðina og skapa jákvæða framtíðarsýn fyrir unga sem aldna,“ segir Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri Dalabyggðar í samtali við Skessuhorn.

Átthagaverkefni til að efla og auka búsetu

Sem hluti af verkefninu „Hver vegur að heiman er vegurinn heim“ hefur meðal annars verið unnið að viðtölum við ungmenni um framtíðarsýn þeirra og tengsl við heimabyggðina. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að efla starf fyrir ungt fólk í sveitarfélaginu, meðal annars með uppbyggingu ungmennahúss sem hefur vakið athygli. Þykir það vera athyglisverður árangur hjá jafn fámennu sveitarfélagi, enda hafa stærri sveitarfélög víða átt í erfiðleikum með að koma sambærilegri starfsemi á laggirnar. Kristján Meldal, sem leiðir verkefnið fyrir SSV og Dalabyggð, hefur undanfarið tekið viðtöl við unga íbúa og brottflutta Dalamenn, allt frá grunnskólanemum upp í fólk á fertugsaldri.

„Dalabyggð vinnur nú að umfangsmiklu átthagaverkefni sem hefur það að markmiði að greina hvað þarf til að halda ungu fólki í sveitarfélaginu, fá brottflutta til að snúa aftur og laða nýja íbúa að svæðinu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) með styrk frá Byggðastofnun,“ segir Kristján í samtali við Skessuhorn og bætir við: „Við viljum komast að því hvað þarf til að fólk vilji búa hér til framtíðar. Við eigum dýrmætt fólk fyrir en viljum jafnframt fá fleiri til að velja Dalabyggð sem heimabyggð.“ Samkvæmt fyrstu niðurstöðum eru fjölbreyttari atvinnumöguleikar efst á óskalista viðmælenda, þar á eftir koma aðgengilegt húsnæði, öflugt félagslíf og bættar samgöngur. Eldri þátttakendur leggja auk þess ríka áherslu á leikskólaþjónustu og gott íþrótta- og tómstundastarf fyrir börn.

Kristján segir jafnframt skýrt koma fram að margir sem flytja burt vegna framhalds- og háskólanáms hefðu áhuga á að snúa heim ef þeir gætu starfað við sitt fag. „Fólk talar um rólegra samfélag, nálægð við fjölskyldu og þann góða anda sem hér ríkir. En það þarf líka að vera hægt að byggja upp framtíð sína hér,“ segir hann. Verkefnið nær einnig til eflingar átthagafræðslu í Auðarskóla, , þar sem fyrirhugað er að kynna sér fyrirmyndarstarf sem unnið er á Snæfellsnesi. Þá hefur verið hrundið af stað tilraunaverkefni með opnu ungmennahúsi sem vonast er til að ungmennaráð taki síðar við. Linda Guðmundsdóttir hefur verið helsti ráðgjafi verkefnisins og átti upphaflega hugmyndina að því.

(23. júlí: Ath! Fréttin hefur verið uppfærð m.t.t. athugasemda)

Hluti af rými Ungmennahúss Dalabyggðar