
Skagamenn höfðu betur í púttinu
Skagamenn fögnuðu sigri gegn Borgfirðingum í púttkeppni eldri kylfinga sem fram fór á Garðavelli á Akranesi í dag. Samanlagt skor sjö bestu kylfinga réði úrslitum. Nú hafði Akranes betur, með 475 högg gegn 482 Borgfirðinga. „Við erum mjög ánægð með þetta, Borgnesingar hafa unnið okkur undanfarin ár,“ sagði Kolbrún Kjartansdóttir, formaður Púttnefndar FEBAN á Akranesi í samtali við Skessuhorn. Alls tóku 48 keppendur þátt og var góð stemning þrátt fyrir rigningu á meðan púttað var. Þetta var annað mótið af þremur í keppnisröð liðanna í sumar og fer lokaumferðin fram á Hamri í Borgarnesi 25. ágúst. Þá verður keppt um farandbikar keppninnar.