
Þórisstaðir og Þórisstaðavatn. Ljósm. Hvalfjarðarsveit
Deiliskipulag fyrir Þórisstaði auglýst
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi fyrir Þórisstaði og Þórisstaði II. Ákvörðunin var tekin á fundi sveitarstjórnar 9. júlí sl. og byggir á því að meginforsendur skipulagsins liggi þegar fyrir í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032. Auglýsing þar að lútandi birtist í Skessuhorn í dag. Deiliskipulagið nær til um 84 hektara svæðis þar sem gert er ráð fyrir frístundabyggð og allt að 100 kW smávirkjun. Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð og landbúnaðarland í aðalskipulagi, með aðkomu frá Dragavegi (520). Lóðir á Þórisstöðum II skiptast í tvö svæði sem bera heitin Kúhalli og Hjallholt.