
Nýtt hringtorg verður gert þar sem Akrafjallsvegur og Akranesvegur mætast.
Borgarverk átti lægsta boð í nýtt hringtorg
Vegagerðin fékk tvö tilboð í verkið „Akrafjallsvegur (51) - hringtorg við Akranes,“ sem opnað var í dag. Framkvæmdin felur í sér gerð hringtorgs á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar, ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi á Akranesi um Lækjarskóga. Jafnframt verður byggð staðsteypt undirgöng undir Akrafjallsveg ásamt nýjum göngu- og hjólastígum sem tengjast undirgöngunum. Verkið er eitt umfangsmesta samgönguverkefni ársins á Vesturlandi.