Fréttir

true

Neyðarlínan hvetur almenning til að vista varanúmerið 599 0112

Neyðarlínan hvetur almenning til að vista símanúmerið 599 0112 í farsíma sínum sem varaleið ef ekki tekst að ná sambandi við neyðarnúmerið 112 eða ef símtal rofnar eða einkennist af slæmum hljóðgæðum. „Áréttað er að alltaf á að reyna fyrst að hringja í 112. Varanúmerið 599-0112 er eingöngu ætlað til notkunar ef ekki tekst að…Lesa meira

true

Sumarleyfi á skrifstofu

Vegna sumarleyfa starfsfólks verður skrifstofa Skessuhorns lokuð frá 23. til 31. júlí. Á þessum dögum er viðskiptavinum bent á tölvupóstinn skessuhorn@skessuhorn.is þurfi þeir að koma tilkynningum eða auglýsingum á framfæri á vef Skessuhorns. Sími ritstjóra er 894-8998. Starfsfólk mætir að nýju til starfa þriðjudaginn 4. ágúst og undirbýr útgáfu blaðs sem gefið verður út miðvikudaginn…Lesa meira

true

Reykholtshátíð á þrjátíu ára vígsluafmæli kirkjunnar

Reykholtskirkja í Borgarfirði var vígð 28. júlí 1996 og verður um helgina fagnað 30 ára vígsluafmæli hennar. Í dag hefst jafnframt hin jafn gamla og árvissa Reykholtshátíð og lýkur á sunnudag.Reykoltskirkja var reist eftir teikningu Garðars Halldórssonar arkitekts. Kirkjan er í dag höfuðkirkja landshlutans og þar fara fram flestar fjölmennari athafnir auk þess sem tónlistarhald…Lesa meira

true

Breyting á aðalskipulagi auglýst vegna leikskóla í Melahverfi

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar auglýsti í Skessuhorni vikunnar skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 fyrir leikskólalóð í Melahverfi. Þetta var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 9. júlí og er breytingin nú í kynningarferli. Breytingin nær til samfélagsþjónustureitsins S13 þar sem unnið er að hönnun nýs leikskóla, Skýjaborgar, og leikskólalóðar við Innrimel 7. Samhliða verður reiturinn stækkaður lítillega…Lesa meira

true

Viðartittlingur tók sér far til Íslands með bresku herskipi

Nam fyrst land á Kirkjubóli og gerði usla í garðinum hjá Kristínu Þegar HMS Prinse of Wales, flaggskip hins konunglega breska sjóhers, sigldi inn Hvalfjörð miðvikudaginn 8. júlí síðastliðinn, og lagðist að bryggju á Grundartanga, voru ekki einungis 1300 sjóliðar sem komu með skipinu. Um borð var einnig laumufarþegi, fyrsti smáfuglinn af tegundinni viðartittlingur sem…Lesa meira

true

Þetta hefur alltaf snúist um að hittast

Guðrún Ágústsdóttir hefur verið í sama saumaklúbbnum í 65 ár – og er eina upphafskonan sem enn situr við prjónana Bæjarhátíðin Heim í Búðardal var haldin í byrjun mánaðarins og var fjölbreytt dagskrá í boði víða um Dalabyggð. Einn viðburðanna fór fram í Stóra-Vatnshornskirkju þar sem 65 ára saga Saumaklúbbs Haukadalskvenna var kynnt. Á sýningunni…Lesa meira

true

AFS leitar að fósturfjölskyldum fyrir skiptinema

AFS á Íslandi eru sjálfboðaliðasamtök sem bjóða ungmennum á aldrinum 15-18 ára að fara í skiptinám til erlendra ríkja, auk þess að taka á móti erlendum skiptinemum hingað til lands. AFS á Íslandi leitar nú að fleiri fósturfjölskyldum fyrir erlenda skiptinema sem koma til landsins 14. ágúst nk. Enn vantar heimili fyrir 14 ungmenni og…Lesa meira

true

Gufuá reddaði geðheilsunni

„Já, þetta var skyndiákvörðun hjá okkur Sigurjóni og við hentumst upp í Borgarfjörð í Gufuá,“ sagði Jógvan Hansen sem var búinn að fá nóg að endalausri rigningu í bænum og skrapp til veiða í gær, en flestar ár á leiðinni voru eins og stórfljót, eftir miklar rigningar að undanförnu. „Árnar voru vatnsmiklar á leiðinni sem…Lesa meira

true

Fyrirlestur um Þórð Kristleifsson – söngmann, kórstjóra og ljóðaþýðanda

Snorrastofa mun á Reykholtshátíð bjóða upp á fyrirlestur dr. Bjarka Sveinbjörnssonar tónlistarfræðings sem hann nefnir: „Hann vildi aldrei hætta við neitt hálfklárað, hann Þórður.“ Dagskráin verður í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti laugardaginn 25. júlí kl. 13 og er hluti af viðburðaröðinni Fyrirlestrar í héraði. Bjarki mun rekja söngnám Þórðar um sjö ára skeið í Þýskalandi…Lesa meira

true

Átta laxar og einn sjóbirtingur

„Við vorum að klára í Flekkudalsá og hollið veiddi átta laxa og einn sjóbirting, misstum helling af fiski, þetta var bara fínt,“ sagði Anna Lea Friðriksdóttir sem var að hætta veiðum í hádeginu í gær. „Það var mikið vatn eftir miklar rigningar, en fiskurinn var lítið að sýna sig. En laxinn virðist vera kominn á…Lesa meira