Neyðarlínan hvetur almenning til að vista varanúmerið 599 0112

Neyðarlínan hvetur almenning til að vista símanúmerið 599 0112 í farsíma sínum sem varaleið ef ekki tekst að ná sambandi við neyðarnúmerið 112 eða ef símtal rofnar eða einkennist af slæmum hljóðgæðum. „Áréttað er að alltaf á að reyna fyrst að hringja í 112. Varanúmerið 599-0112 er eingöngu ætlað til notkunar ef ekki tekst að tengjast 112 eða ef gæði símtals gera samskipti ómöguleg,“ segir í tilkynningu. „Símtöl í varanúmerið eru meðhöndluð eins og almenn símtöl. Þau njóta því ekki sama forgangs í símkerfinu og símtöl í 112 og senda ekki sjálfkrafa staðsetningarupplýsingar til Neyðarlínunnar.

„Farsímafélögin á Íslandi hafa nýlega lokið við lokun eldri 2G- og 3G - farsímakerfa og reiðir sig nú alfarið á 4G- og 5G-innviði. Þótt breytingarnar hafi almennt gengið vel geta þær haft áhrif á tengingu sumra farsíma. Í þeim tilvikum getur meðal annars komið upp að; ekki tekst að tengjast 112, hljóðgæði í símtali eru slæm eða trufluð og símtal rofnar óvænt. Fjarskiptastofa, íslensku farsímafyrirtækin og Neyðarlínan vinna nú sameiginlega að því að greina og leysa þessi tilvik eins hratt og kostur er.“