Anna Lea Friðriksdóttir með flottan lax úr Flekkudalsá en áin hefur gefið 26 laxa og nokkra sjóbirtinga.

Átta laxar og einn sjóbirtingur

„Við vorum að klára í Flekkudalsá og hollið veiddi átta laxa og einn sjóbirting, misstum helling af fiski, þetta var bara fínt,“ sagði Anna Lea Friðriksdóttir sem var að hætta veiðum í hádeginu í gær. „Það var mikið vatn eftir miklar rigningar, en fiskurinn var lítið að sýna sig. En laxinn virðist vera kominn á allmarga staði í ánni. En vatnið hefur sjatnað núna og verður væntanlega flott fyrir næstu holl í ánni. Það hafa veiðst 26 laxar í Flekku,“ sagði Anna Lea.