
Samsett mynd. Dr. Bjarki Sveinbjörnsson og til hægri er mynd af Þórði Kristleifssyni.
Fyrirlestur um Þórð Kristleifsson – söngmann, kórstjóra og ljóðaþýðanda
Snorrastofa mun á Reykholtshátíð bjóða upp á fyrirlestur dr. Bjarka Sveinbjörnssonar tónlistarfræðings sem hann nefnir: „Hann vildi aldrei hætta við neitt hálfklárað, hann Þórður.“ Dagskráin verður í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti laugardaginn 25. júlí kl. 13 og er hluti af viðburðaröðinni Fyrirlestrar í héraði.