
Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. Hvalfjarðarsveit.
Breyting á aðalskipulagi auglýst vegna leikskóla í Melahverfi
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar auglýsti í Skessuhorni vikunnar skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020–2032 fyrir leikskólalóð í Melahverfi. Þetta var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 9. júlí og er breytingin nú í kynningarferli. Breytingin nær til samfélagsþjónustureitsins S13 þar sem unnið er að hönnun nýs leikskóla, Skýjaborgar, og leikskólalóðar við Innrimel 7. Samhliða verður reiturinn stækkaður lítillega og afmörkun aðliggjandi skógræktar- og landgræðslusvæðis breytt til samræmis. Skilmálar aðalskipulags haldast hins vegar óbreyttir.