
Reykholtskirkja í Borgarfirði. Ljósm. mm
Reykholtshátíð á þrjátíu ára vígsluafmæli kirkjunnar
Reykholtskirkja í Borgarfirði var vígð 28. júlí 1996 og verður um helgina fagnað 30 ára vígsluafmæli hennar. Í dag hefst jafnframt hin jafn gamla og árvissa Reykholtshátíð og lýkur á sunnudag.
Reykoltskirkja var reist eftir teikningu Garðars Halldórssonar arkitekts. Kirkjan er í dag höfuðkirkja landshlutans og þar fara fram flestar fjölmennari athafnir auk þess sem tónlistarhald er mikið.
Reykholtshátíð; sígild tónlistarhátíðin er nú haldin í þrítugasta sinn, en nánari upplýsingar um dagskrá hennar má finna í auglýsingu í Skessuhorni. Meðal dagskrárliða verður hátíðarmessa á sunnudaginn kl. 14:00 þar sem biskup Íslands og sóknarprestur þjóna fyrir altari.