
Metaðsókn var í Íþróttamiðstöð Dalabyggðar helgina 3.–5. júlí sl. en aldrei hafa fleiri gestir sótt miðstöðina á einni helgi. Vel á fimmta hundrað manns lögðu leið sína í sundlaugina þessa þrjá daga. Bæjarhátíðin Heim í Búðardal fór fram sömu helgi og nýttu fjölmargir hátíðargestir tækifærið til að sækja sundlaugina og aðra aðstöðu íþróttamiðstöðvarinnar milli viðburða.…Lesa meira








