Fréttir

true

Kári féll úr Gatorade bikarnum í æsispennandi vítaspyrnukeppni

Kormákur/Hvöt tryggði sér sæti í átta liða úrslitum í Gatoradebikarnum eftir dramatískan sigur á Kára frá Akranesi á Blönduósvelli sl. miðvikudagskvöld. Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni eftir að hvorugu liðinu tókst að gera út um leikinn í venjulegum leiktíma og framlengingu. Skagamenn komust í 1:0 á 20. mínútu með marki frá Benedikt Ísar…Lesa meira

true

Skallagrímur með góðan sigur á toppliði Smára

Skallagrímur vann mikilvægan 3:2 sigur á toppliði Smára úr Kópavogi þegar liðin mættust í toppslag A-riðils 5. deildar karla í Borgarnesi í gær. Með sigrinum er Skallagrímur kominn í titilbaráttu riðilsins, en liðið varð jafnframt það fyrsta til að leggja Smára að velli á tímabilinu. Gestirnir byrjuðu betur og komust yfir á 19. mínútu þegar…Lesa meira

true

Messa og samvera í Grensási

Messa var haldin á skógræktarsvæðinu Grensási við Stykkishólm síðdegis í gær. Sóknarpresturinn séra Hilda María Sigurðardóttir leiddi messuna og fjölmenni á öllum aldri tók þátt í samverustundinni. Að messu lokinni var boðið upp á grillaðar pylsur sem fengu góðar undirtektir meðal gesta. Veðrið var með besta móti mestallan tímann og þótt örlítil væta léti á…Lesa meira

true

Hvöss sunnanátt um norðvestanvert landið

Um norðavestanvert landið er spáð hvössum og byljóttum vindi frá því seint í kvöld og fram yfir miðjan dag á morgun. Hviður í sunnanátt geta staðbundið orðið allt að 30-35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi til Eyjafjarðar. Þá er varað við talsverðu sandfoki á morgun á hálendinu norðan Vatnajökuls.Lesa meira

true

Sturluhátíð er á morgun

„Eitt tilhlökkunarefni hvers sumars er Sturluhátíðin, sem ár hvert er haldin annan laugardag í júlí sem að þessu sinni ber upp á 11. júlí nk. Sturluhátíðin er kennd við sagnaritarann Sturlu Þórðarson sem bjó á Staðarhóli, Saurbæ í Dölum. Hátíðin sjálf verður í íþróttahúsinu að Laugum í Sælingsdal. Undanfarin ár hefur hún verið ótrúlega fjölsótt;…Lesa meira

true

Þverá örugg í efsta sætinu

Veiðitölur eru farnar að berast úr laxveiðiánum. Á vef Landssambands veiðifélaga gengur reyndar treglega að fá inn tölur frá mörgum laxveiðiám. Engu að síður vitum við að veiðin hefur lagast í mörgum þeirra, sérstaklega á Vestur- og Suðurlandi. Þverá í Borgarfirði er örugg í efsta sætinu núna. „Það eru komnir 550 laxar hjá okkur í…Lesa meira

true

Varðskip með vatn til Flateyjar

Varðskipið Þór átti viðkomu í Flatey á Breiðafirði á miðvikudagsmorgun með vatn til að bæta vatnsbirgðir í eyjunni. Á fjórða tug tonna af vatni var dælt á vatnskerfi eyjarinnar. Ferðin var farin að beiðni Vegagerðarinnar. Vegagerðin kannaði jafnframt hvort þörf væri á að flytja sorp frá eyjunni eða olíu til hennar, en svo reyndist ekki…Lesa meira

true

Stórar göngur að hellast inn í Laxá í Leirársveit

Svo virðist sem laxinn sé loksins að ganga í árnar af krafti og vel hefur veiðst síðustu daga í ám á Vesturlandi. Við heyrðum í veiðimanni sem staddur var við Laxá í Leirsveit á miðvikudagskvöld og hann hafi aldrei séð svona stórar laxagöngur. Og það sama var gerast í ósnum í Elliðaánum sama dag, hellingur…Lesa meira

true

Herskip taka kost á Grundartanga

Óvenjulega mikil skipaumferð var um Hvalfjörð í gær. Skipin voru auk þess af stærri gerðinni og ekki hefðbundin flutningaskip eins og nær daglega sigla þar um. Í byrjun dags sigldu dráttarbátar hverja ferðina af annarri með pramma í eftirdragi. Þá var breska herskipið Tidespring lóðsað inn fjörðinn en síðdegis var það flugmóðurskipið HMS Prinse of…Lesa meira

true

Mikill fjöldi ferðamanna í Grundarfirði síðustu daga

Það sem af er júlí hefur hvert skemmtiferðaskipið af öðru komið til hafnar í Grundarfirði þar sem ferðamenn streyma í land og skoða það sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða. Á laugardaginn komu skipin Carnival Legend og Le Austral til hafnar í blíðskaparveðri. Á sunnudaginn lá svo Spirit of discovery við Norðurgarð en það…Lesa meira