Kári féll úr Gatorade bikarnum í æsispennandi vítaspyrnukeppni

Kormákur/Hvöt tryggði sér sæti í átta liða úrslitum í Gatoradebikarnum eftir dramatískan sigur á Kára frá Akranesi á Blönduósvelli sl. miðvikudagskvöld. Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni eftir að hvorugu liðinu tókst að gera út um leikinn í venjulegum leiktíma og framlengingu. Skagamenn komust í 1:0 á 20. mínútu með marki frá Benedikt Ísar Björgvinssyni. Heimamenn svöruðu hins vegar fyrir sig um 10 mínútum síðar þegar þeir fengu vítaspyrnu. Pere Belmonte steig á punktinn og jafnaði metin af öryggi. Á 36. mínútu komst Kormákur/Hvöt yfir með glæsilegu langskoti Guzman Díaz Scarone, eftir undirbúning Manu. Staðan 2:1 Kormáki/Hvöt í vil þegar gengið var til leikhlés.