Svipmynd úr leiknum: fotbolti.net/Hanna Símonardóttir

Skallagrímur með góðan sigur á toppliði Smára

Skallagrímur vann mikilvægan 3:2 sigur á toppliði Smára úr Kópavogi þegar liðin mættust í toppslag A-riðils 5. deildar karla í Borgarnesi í gær. Með sigrinum er Skallagrímur kominn í titilbaráttu riðilsins, en liðið varð jafnframt það fyrsta til að leggja Smára að velli á tímabilinu.