Fréttir

true

Ingibjörg kynnti sér áhrif fjarveru Baldurs á atvinnulífið

Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, fundaði á miðvikudaginn með fulltrúum frá Félagi atvinnulífs í Stykkishólmi til að kynna sér áhrif þess að ferjan Baldur hefur verið tekin úr siglingum yfir Breiðafjörð og flutt til Vestmannaeyja. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms, sat einnig fundinn. Fundurinn var haldinn að frumkvæði Ingibjargar sem vildi fá…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit tekur fyrstu skrefin í Gott að eldast

Sem liður í verkefninu Gott að eldast hefur Hvalfjarðarsveit stigið mikilvægt skref með stofnun svokallaðs Móma-teymis, en það stendur fyrir móttöku- og matsteymi. Teymið mun fara yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun í sveitarfélaginu. Í teyminu eiga sæti fulltrúar frá velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar, Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), hjúkrunarheimilinu Höfða ásamt iðjuþjálfa…Lesa meira

true

Skóli er ekki verksmiðja – skólameistari sendir stjórnvöldum tóninn

Í aðsendri grein í Skessuhorni ritar Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari um starf Fjölbrautaskóla Vesturlands. Nú er innritun í skólann lokið og var aðsókn góð að vanda.  Alls innritast 175 nýir nemendur í skólann, þar af 131 nýnemi úr grunnskóla í bók- og verknám. Nemendahópar eru fullir í vélvirkjun og húsasmíði og örfá pláss laus í…Lesa meira

true

Samkeppniseftirlitið skoðar áfram verðþróun á eldsneyti

Samkeppniseftirlitið hefur kallað eftir nánari skýringum frá olíufélögum vegna gruns um að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafi ekki skilað sér að fullu til neytenda. Þetta kemur fram í nýju umræðuskjali eftirlitsins um eldsneytismarkaðinn sem birt var í dag. Greining eftirlitsins sýnir að álagning á bensín hefur hækkað um 25% að raunvirði frá árinu 2022…Lesa meira

true

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hefur opnað fyrir tilnefningar til árlegra umhverfisviðurkenninga sveitarfélagsins. Viðurkenningunum er ætlað að hvetja íbúa, bændur og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum við að fegra nærumhverfið og stuðla að snyrtilegu og aðlaðandi sveitarfélagi. Hægt er að senda inn tilnefningar í fimm flokkum: snyrtilegt bændabýli, fallega lóð við íbúðarhús, snyrtilega atvinnulóð,…Lesa meira

true

Haukar höfðu betur í toppslagnum gegn Kára

Haukar unnu sannfærandi 4 – 1 sigur á Kára þegar liðin mættust í toppslag 2. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Með sigrinum styrktu Haukar stöðu sína á toppi deildarinnar. Sigurður Hrannar Þorsteinsson lagði grunninn að sigrinum með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik. Fyrra markið skoraði hann af vítapunktinum eftir að…Lesa meira

true

Dagskrá Írskra daga komin á fullt

Bæjarhátíðin Írskir dagar hófst nú í byrjun vikunnar á Akranesi. Dagskráin er býsna þétt allt til sunnudagsins 5. júlí. Meðal viðburða sem liðnir eru má nefna tónleika í tjaldi á Lopapeysusvæðinu; á þriðjudaginn voru Slitnir strengir með tónleika og í gær fluttu Söngdætur Akraness Óð til Írlands. Á sama tíma í gærkvöldi var Froðudiskó Arnardals…Lesa meira

true

Spáir góðum göngum af eins árs laxi

Veiðisumarið sem nú er að ganga í garð gæti skilað þokkalegum göngum af eins árs laxi ef marka má mælingar á hitastigi sjávar frá því í fyrrasumar. „Ég er að minnsta kosti ekki svartsýnn núna,“ sagði Jóhannes Guðbrandsson fiskifræðingur á Hvanneyri í viðtali við tímaritið Veiðimanninn sem nýlega kom út. Jóhannes er fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun.…Lesa meira

true

Skorradal hefur verið bætt inn í Kortasjá Borgarbyggðar

Lokið hefur verið við endurbætur á kortasjá Borgarbyggðar. Með uppfærslunni hefur meðal annars verið bætt við nýjum öryggisstillingum, auk þess sem fleiri upplýsingar eru nú aðgengilegar fyrir notendur. Jafnframt hefur svæði Skorradalshrepps verið tekið inn í kortasjána í kjölfar sameiningar sveitarfélaganna. Þar með eru skipulagsgögn, teikningar og aðrar landupplýsingar sem varða Skorradal nú aðgengilegar á…Lesa meira

true

Fundinn heill á húfi

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi kemur fram að 15 ára drengur, sem lögreglan lýsti eftir í gær, er fundinn heill á húfi. „Viljum við þakka öllum sem höfðu samband við okkur vegna málsins,“ segir í tilkynningunni.Lesa meira