Frá vinstri: Anna Guðrún Alexandersdóttir og Freyja Þöll Smáradóttir frá velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar, Heiður Haraldsdóttir iðjuþjálfi hjá SSV, Ragnheiður Helgadóttir og Rakel Valsdóttir frá heimahjúkrun HVE og Þorbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri á hjúkrunarheimilinu Höfða. Ljósm. aðsend

Hvalfjarðarsveit tekur fyrstu skrefin í Gott að eldast

Sem liður í verkefninu Gott að eldast hefur Hvalfjarðarsveit stigið mikilvægt skref með stofnun svokallaðs Móma-teymis, en það stendur fyrir móttöku- og matsteymi. Teymið mun fara yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun í sveitarfélaginu. Í teyminu eiga sæti fulltrúar frá velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar, Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), hjúkrunarheimilinu Höfða ásamt iðjuþjálfa frá SSV. Með þessu er stigið skref í átt að samþættri og samfelldri þjónustu við eldra fólk.