
Skorradal hefur verið bætt inn í Kortasjá Borgarbyggðar
Lokið hefur verið við endurbætur á kortasjá Borgarbyggðar. Með uppfærslunni hefur meðal annars verið bætt við nýjum öryggisstillingum, auk þess sem fleiri upplýsingar eru nú aðgengilegar fyrir notendur. Jafnframt hefur svæði Skorradalshrepps verið tekið inn í kortasjána í kjölfar sameiningar sveitarfélaganna. Þar með eru skipulagsgögn, teikningar og aðrar landupplýsingar sem varða Skorradal nú aðgengilegar á sama stað og gögn fyrir önnur svæði Borgarbyggðar.