Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson bæjarstjóri, Erlingur Einarsson hótelstjóri Fosshótels í Stykkishólmi, Steinunn Helgadóttir eigandi Narfeyrarstofu, Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður, Sara Hjörleifsdóttir eigandi Sjávarpakkhússins, Hafþór Benediktsson eigandi BB & sona og Gyða Steinsdótti, skrifstofu- og fjármálastjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms. Ljósm. gsp

Ingibjörg kynnti sér áhrif fjarveru Baldurs á atvinnulífið

Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, fundaði á miðvikudaginn með fulltrúum frá Félagi atvinnulífs í Stykkishólmi til að kynna sér áhrif þess að ferjan Baldur hefur verið tekin úr siglingum yfir Breiðafjörð og flutt til Vestmannaeyja. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Stykkishólms, sat einnig fundinn. Fundurinn var haldinn að frumkvæði Ingibjargar sem vildi fá milliliðalausar upplýsingar frá atvinnulífi og heimamönnum um áhrif þess að Baldur var tekinn úr reglubundnum siglingum um Breiðafjörð og færður til Vestmannaeyja.

Ingibjörg kynnti sér áhrif fjarveru Baldurs á atvinnulífið - Skessuhorn