
Dagskrá Írskra daga komin á fullt
Bæjarhátíðin Írskir dagar hófst nú í byrjun vikunnar á Akranesi. Dagskráin er býsna þétt allt til sunnudagsins 5. júlí. Meðal viðburða sem liðnir eru má nefna tónleika í tjaldi á Lopapeysusvæðinu; á þriðjudaginn voru Slitnir strengir með tónleika og í gær fluttu Söngdætur Akraness Óð til Írlands. Á sama tíma í gærkvöldi var Froðudiskó Arnardals fyrir 14-16 ára í öðru tjaldi á hafnarsvæðinu. Í gær voru einnig Hálandaleikar Hjalta Úrsus við byggðasafnið, opnun á sýningunni Fíllinn í herberginu í Drekahellinum og kvöldopnun í verslunum, svo fátt eitt sé nefnt.
Dagskráin heldur síðan áfram í dag og næstu daga. Síðdegis verður söguganga Kellinganna um Breið, Húsasmiðjan verður með árlega pylsuveislu sína, ÍA stelpur taka á móti Gróttu í Lengjudeildinni kl. 19:15 og fjölskyldutónleikar verða á hafnarsvæðinu. Fólk er hvatt til að fylgjast með dagskrá Írskra daga, en hana er meðal annars að finna á miðopnu Skessuhorns sem kom út í gær.



