
Samkeppniseftirlitið skoðar áfram verðþróun á eldsneyti
Samkeppniseftirlitið hefur kallað eftir nánari skýringum frá olíufélögum vegna gruns um að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafi ekki skilað sér að fullu til neytenda. Þetta kemur fram í nýju umræðuskjali eftirlitsins um eldsneytismarkaðinn sem birt var í dag. Greining eftirlitsins sýnir að álagning á bensín hefur hækkað um 25% að raunvirði frá árinu 2022 en álagning á dísil um 50%. Jafnframt eru vísbendingar um að sum olíufélög hafi hækkað verð í lok apríl, skömmu áður en skattalækkunin tók gildi 1. maí, og að verðlækkunin hafi ekki í öllum tilvikum numið þeirri lækkun sem skattabreytingin gaf tilefni til.
Í skýrslunni kemur einnig fram að smásöluverð eldsneytis hafi hækkað í maí þótt innkaupsverð hafi lítið breyst og síðar lækkað. Þrátt fyrir það hafi lækkunin ekki skilað sér að fullu til neytenda og álagning aukist jafnt og þétt frá byrjun mars. Eftirlitið mun taka afstöðu til frekari aðgerða þegar svör olíufélaganna hafa borist.
Þá bendir greiningin til þess að Ísland sé að jafnaði með hæsta bensín- og dísilverð í samanburði við 27 Evrópulönd þegar opinber gjöld eru undanskilin. Einnig kemur fram að innlent eldsneytisverð virðist fylgja hækkunum á heimsmarkaðsverði hraðar en lækkunum, sem eftirlitið telur einkenni markaðar þar sem samkeppni er takmörkuð.
Samkeppniseftirlitið hefur jafnframt óskað eftir sjónarmiðum frá fyrirtækjum, hagsmunaaðilum og almenningi um leiðir til að efla samkeppni á eldsneytismarkaði. Frestur til að skila athugasemdum er til 15. ágúst.