
Miðvikudaginn 1. júlí klukkan 20 munu Söngdætur Akraness halda tónleika í stóra tjaldinu á hátíðarsvæðinu við Akraneshöfn. Um er að ræða glæsilega tónlistarveislu sem nú er haldin þriðja árið í röð í tengslum við fjölskylduhátíðina Írska daga á Akranesi. Tónleikarnir nefnast Óður til Írlands og á efnisskránni er fjölbreytt keltnesk og írsk tónlist, allt frá…Lesa meira








