
Viðbótariðgjald má nú að nýju greiða inn á húsnæðislán
Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána var samþykkt á Alþingi á lokadegi þinghalds fyrir helgi. Þessi heimild hefur ekki verið til staðar frá síðustu áramótum. Frumvarpið felur í sér varanlega heimild til að ráðstafa viðbótariðgjaldi til séreignarsparnaðar skattfrjálst til greiðslu inn á höfuðstól lána sem tekin eru vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota.