Ásmundur Kristinn ásamt nýútskrifuðum lögregluþjónum af Vesturlandi.

Stærsti útskriftarhópur lögreglumanna af Vesturlandi

Háskólinn á Akureyri útskrifaði stóran hóp nemenda um helgina og meðal annars úr lögreglunámi. Níu nemendur frá Vesturlandi luku lögreglunámi. Öll voru þau að útskrifast úr námi sem er sérsniðið fyrir starfandi lögreglumenn sem uppfylla skilyrði laga til skipunar í embætti lögreglumanns. Námið við skólann fól því ekki í sér starfsnám. Öll hafa þau starfað við löggæslu hér á Vesturlandi og munu halda því áfram. Á meðfylgjandi mynd eru nýútskrifað lögreglufólk ásamt Ásmundi Kristni Ásmundssyni yfirlögregluþjóni á Vesturlandi sem viðstaddur var brautskráninguna.

Stærsti útskriftarhópur lögreglumanna af Vesturlandi - Skessuhorn