
Slökkvilið Snæfellsbæjar og Grundarfjarðar voru á ellefta tímanum í gærkvöldi kölluð út. Eldur var þá laus í húsi sem stendur við Gamla frystihúsið á Hellissandi. Húsnæðið hefur undanfarin ár verið nýtt sem geymslur. Slökkviliði Snæfellsbæjar gekk vel að ráða niðurlögum eldsins og var slökkvistarfi að mestu lokið þegar kollegar þeirra frá Grundarfirði náðu á staðinn.…Lesa meira








