Fréttir

true

Vestlendingar héldu upp á Þjóðhátíðardaginn – myndasyrpa

Hátíðarhöld voru um allt land á Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Veður var ágætt en þó blés aðeins og jafnvel að féllu regndropar á sumum stöðum. Á Vesturlandi var fjölbreytt dagskrá skipulögð í sveitarfélögunum. Skrúðgöngur, lúðrablástur, skemmtiatriði, útnefning bæjarlistamanna, leiktæki fyrir börn og veitingasala, svo fátt eitt sé nefnt. Meðfylgjandi myndir tók tíðindafólk Skessuhorns á hátíðisdeginum. Skessuhorn…Lesa meira

true

Leikfélagið Lauga hlaut menningarviðurkenningu Snæfellsbæjar

Menningarnefnd Snæfellsbæjar veitti fulltrúum úr Leikfélaginu Laugu viðurkenningu við hátíðlega athöfn í Sjómannagarðinum í Ólafsvík í gær á 17. júní. Í yfirlýsingu menningarnefndar kemur fram að starf félagsins beri vitni um mikla elju, sköpunargáfu og ástríðu fyrir leiklist og er  mikilvægur þáttur í að efla menningu og samfélagsanda í sveitarfélaginu. „Leikfélagið Lauga á mikið hrós…Lesa meira

true

Litlu Norðurálsleikarnir voru spilaðir í veðurblíðu

Í gær á Þjóðhátíðardaginn 17. júní fóru Litlu Norðurálsleikarnir í knattspyrnu fram á Jaðarsbökkum á Akranesi. Mótið er í einn dag en á því keppa verðandi knattspyrnuhetjur landsins, börn í 8. flokki. Mótið gekk vel og var spilað við kjöraðstæður. Á myndinni er Helena Ósk Einarsdóttir þjálfari ÍA með hóp stúlkna sem þarna voru nýbúnar…Lesa meira

true

Bruni í gamla frystihúsinu á Hellissandi

Slökkvilið Snæfellsbæjar og Grundarfjarðar voru á ellefta tímanum í gærkvöldi kölluð út. Eldur var þá laus í húsi sem stendur við Gamla frystihúsið á Hellissandi. Húsnæðið hefur undanfarin ár verið nýtt sem geymslur. Slökkviliði Snæfellsbæjar gekk vel að ráða niðurlögum eldsins og var slökkvistarfi að mestu lokið þegar kollegar þeirra frá Grundarfirði náðu á staðinn.…Lesa meira

true

Soffía Björg er Listamanneskja Borgarbyggðar

Við hátíðarhöld í Borgarnesi í gær á þjóðhátíðardaginn 17. júní var tilkynnt um val á Listamanneskju Borgarbyggðar 2026. Að þessu sinni er það Soffía Björg Óðinsdóttir söng- og myndlistarkona frá Einarsnesi. Soffía Björg er fædd og uppalin í Einarsnesi í Borgarhreppi. Hún hefur verið starfandi tónlistarkona frá árinu 2010. Í maí á þessu ári hélt…Lesa meira

true

Kvennalið Snæfells verður ekki á stóra sviðinu í vetur

Stjórn meistaraflokks Snæfells í körfuboltanum hefur ákveðið að kvennalið félagsins verður ekki skráð til keppni í meistaraflokki á komandi tímabili. Ástæða þeirrar ákvörðunar er sú að of fáir leikmenn eru tiltækir til að halda úti samkeppnishæfu liði á næsta tímabili. „Ákvörðunin var tekin að vel ígrunduðu máli eftir að ýmsir möguleikar höfðu verið skoðaðir til…Lesa meira

true

Angela er bæjarlistamaður Akraness

Angela Árnadóttir myndlistarkennari í Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur verið útnefnd bæjarlistamaður Akraness fyrir árið 2026. Þetta var tilkynnt á hátíðarhöldum á Akratorgi á 17. júní. „Angela er afar vel að þessum verðlaunum komin og við vonum að þessi fjölhæfa listakona haldi áfram að lífga upp á bæinn með sinni einstöku nærveru og listsköpun,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Sigga mætti með tvö hrossa sinna í Brákarhlíð

Það færist í vöxt að fólk komi með hross í heimsókn til íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Þeir gleðja íbúa gjarnan og vekja upp ljúfar minningar. Síðastliðinn fimmtudag mætti Sigríður Skúladóttir í Borgarnesi með hrossin Kulda og Nínu á hjúkrunarheimilið Brákarhlíð. Þessi heimsókn þeirra mæltist afar vel fyrir, vakti ánægju og gleði eins og sjá…Lesa meira

true

Fyrsta opna ferð Særúnar að sumrinu – myndasyrpa

Í gær fóru Sæferðir í Stykkishólmi í fyrstu opnu ferð sumarsins um Breiðafjarðareyjar. Blaðamaður Skessuhorns slóst með í för og tók nokkrar myndir. Lagt var upp í rjómablíðu og gestir nutu fugla- og náttúruskoðunar og smökkuðu á skelfiski sem veiddur var í ferðinni. Farið var til að mynda að Hvítabjarnarey þar sem sjá mátti sauðfé…Lesa meira

true

Skemmtiferðaskip liggur við nýju bryggjuna á Akranesi

Um klukkan 8 í morgun lagðist skemmtiferðaskipið Le Bellot að bryggju á Akranesi. Er þetta eitt af fyrstu skipunum sem nýtir stækkaða aðalbryggju Akraneshafnar. Skipið átti upphafalega að sigla til Grundarfjarðar, en þau áform breyttust vegna veðurs, en strekkingsvindur er nú á Snæfellsnesi. Þetta er fyrsta skemmtiferðaskipið sem heimsækir Akranes í nokkur ár og mögulega…Lesa meira