Fréttir

true

Rafmagnslaust á stórum hluta Vesturlands í nótt

Vegna viðhaldsvinnu Landsnets við aðveitustöðina á Vatnshömrum í Andakíl verður rafmagnslaust á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði, þ.m.t. Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík, Hellissandi, Vegamótum og Borgarnesi, frá miðnætti og til klukkan 02:10 í nótt; aðfaranótt fimmtudagsins 11. júní. „Viðskiptavinir eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna þessa. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000.“Lesa meira

true

Skoðunardagur fornbíla er á föstudaginn

Næstkomandi föstudag frá klukkan 14-18 verður sameiginlegur skoðunardagur Fornbílafjelags Borgarfjarðar og Raftanna hjá Frumherja við Sólbakka í Borgarnesi. Frumherji mun bjóða upp á grillaðar pylsur og gos af þessu tilefni. Viðbúið er að margir eldri vélfákar, sem alla jafnan eru ekki í umferðinni, mæti á svæðið.Lesa meira

true

Málörvun í daglegu leikskólastarfi í Borgarbyggð

Síðastliðinn fimmtudag var haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi – snemmtæk íhlutun í leikskólum Borgarbyggðar. Hátíðin var haldin í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins. Allir leikskólar í Borgarbyggð tóku þátt í verkefninu, en það var unnið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. „Á árinu hafa leikskólarnir rýnt í málörvunarstarfið…Lesa meira

true

„Til fiskiveiða fóru“

Sýning opnuð í Bátahúsinu á Byggðasafni Akraness og Hvalfjarðarsveitar Sýningin „Til fiskiveiða fóru“ hefur nú verið opnuð í Bátahúsinu á Byggðasafninu í Görðum. Sýningin er öll hin glæsilegasta en undirbúningur hennar hefur staði yfir í nokkurn tíma, en þar er skyggnst inn í útgerðarsögu Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Það var viðeigandi að sýningin var opnuð almenningi …Lesa meira

true

Stórleikur hjá ÍA í bikarnum

Föstudaginn 12. júní nk. verður stórleikur í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu á Elkem vellinum á Akranesi. Þá mæta Íslandsmeistarar Víkings Skagamönnum í átta liða úrslitum bikarsins. Leikurinn hefst kl. 20:15 en dagskrá mun hefjast á svæðinu kl. 18:00 þar sem spáð er frábæru veðri. Það er mikið undir fyrir bæði lið og ekki loku fyrir…Lesa meira

true

Starfrækja kaffihús í Skemmunni í sumar

Í Skemmunni, elsta húsi Hvanneyrarstaðar, verður í sumar opið kaffihús. Að því standa hjónin Iðunn Hauksdóttir ráðgjafi hjá Landi og Skógi og Kristján Thors kokkur, en þau eru búsett á staðnum. Þess má geta að á sínum tíma þegar Skemman var gerð upp kom að verkinu laghentur Ölkeldingur, Haukur Þórðarson, faðir Iðunnar. „Við munum bjóða…Lesa meira

true

Endurleggja malbik á Skógarlund á Akranesi

Búið er að fletta malbiki af 350 metra löngum kafla á götunni Skógarlundi í Skógarhverfi á Akranesi. Um nýja götu er að ræða. Eftir að verkframkvæmdum var lokið kom í ljós aflögun í malbikinu á nokkrum stöðum og stóðu m.a. brunnlok upp úr götunni. „Þetta lýsti sér sem misfellur í malbiki sem metið var að…Lesa meira

true

Skólastjóri Heiðarskóla kvaddur með virktum

Föstudaginn 5. júní sl. var Sigríður Lára Guðmundsdóttir, skólastjóri Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, heiðruð með þakklætisvotti í tilefni af tímamótum á starfsferli sínum við Heiðarskóla. Sigga Lára, eins og hún er kölluð, hefur starfað við skólann allt frá árinu 1992 og á þeim tíma verið ómetanlegur hluti af skólasamfélaginu. „Í gegnum árin hefur hún fylgt heilu…Lesa meira

true

Kvöldstund í Sundlaug Stykkishólms

Sundlaug Stykkishólms ætlar að bjóða upp á notalega kvöldsundstund í kvöld milli kl. 20 og 22. Um er að ræða samverustund sem hentar vel fyrir alla fjölskylduna; íbúa, nágranna og aðra gesti. Hressandi drykkur á boðstólnum fyrir gesti undir ljúfri tónlist. Viðburðurinn er styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Hann er hluti…Lesa meira

true

Talþjálfun Vesturlands hefur verið lokað

Undir lok maímánaðar var hurðinni að Talþjálfun Vesturlands við Stekkjarholt á Akranesi,  TalVest, lokað fyrir fullt og allt. Þjónustan sem innt var af hendi á stofunni fólst í greiningu, þjálfun og ráðgjöf vegna tal- og málmeina og störfuðu tveir menntaðir talmeinafræðingar við stofuna. Þeir hafa nú horfið til annarra starfa. Börn sem greinast með framburðarfávik,…Lesa meira