..og þá er bara að bíða eftir föstudeginum. Ljósm. kfía

Stórleikur hjá ÍA í bikarnum

Föstudaginn 12. júní nk. verður stórleikur í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu á Elkem vellinum á Akranesi. Þá mæta Íslandsmeistarar Víkings Skagamönnum í átta liða úrslitum bikarsins. Leikurinn hefst kl. 20:15 en dagskrá mun hefjast á svæðinu kl. 18:00 þar sem spáð er frábæru veðri. Það er mikið undir fyrir bæði lið og ekki loku fyrir það skotið að úrslitin velti á því hvort liðið verði fyrra til að skáka hinu!