
Starfrækja kaffihús í Skemmunni í sumar
Í Skemmunni, elsta húsi Hvanneyrarstaðar, verður í sumar opið kaffihús. Að því standa hjónin Iðunn Hauksdóttir ráðgjafi hjá Landi og Skógi og Kristján Thors matreiðslumeistari en þau eru búsett á staðnum. Þess má geta að á sínum tíma þegar Skemman var gerð upp kom að verkinu laghentur Ölkeldingur, Haukur Þórðarson, faðir Iðunnar.
„Við munum bjóða upp á belgískar vöfflur, bæði matarvöfflur og sætar. Úrval verður af kaffidrykkjum úr expresso vél, en einnig hefðbundinn uppáhellingur. Þá verður kaka dagsins í boði,“ segir Iðunn í samtali við Skessuhorn.
Dyrnar verða opnaðar næstkomandi laugardag. „Við hlökkum til að taka á móti öllum, staðarbúum, öðrum Vestlendingum sem og ferðalöngum.“ Hún segir að kaffihús hafi vissulega áður verið rekið í Skemmunni en nú ætli þau að leggja áherslu á gæði í mat og drykk.
Opnunartími kaffihússins verður kl. 12 - 17 alla daga, utan mánudaga, en þá verður lokað.