
Skoðunardagur fornbíla er á föstudaginn
Næstkomandi föstudag frá klukkan 14-18 verður sameiginlegur skoðunardagur Fornbílafjelags Borgarfjarðar og Raftanna hjá Frumherja við Sólbakka í Borgarnesi. Frumherji mun bjóða upp á grillaðar pylsur og gos af þessu tilefni. Viðbúið er að margir eldri vélfákar, sem alla jafnan eru ekki í umferðinni, mæti á svæðið.