
Leikskólabörn í fjöruferð. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Málörvun í daglegu leikskólastarfi í Borgarbyggð
Síðastliðinn fimmtudag var haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi - snemmtæk íhlutun í leikskólum Borgarbyggðar. Hátíðin var haldin í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins. Allir leikskólar í Borgarbyggð tóku þátt í verkefninu, en það var unnið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. „Á árinu hafa leikskólarnir rýnt í málörvunarstarfið sitt, unnið að skýrara verklagi og sett niðurstöður vinnunnar í handbækur sem eiga síðan að styðja við áframhaldandi þróunarstarf,“ segir á vef sveitarfélagsins.