Mynd tekin við þetta tilefni. Ljósm. Hvalfjarðarsveit

Skólastjóri Heiðarskóla kvaddur með virktum

Föstudaginn 5. júní sl. var Sigríður Lára Guðmundsdóttir, skólastjóri Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit, heiðruð með þakklætisvotti í tilefni af tímamótum á starfsferli sínum við Heiðarskóla. Sigga Lára, eins og hún er kölluð, hefur starfað við skólann allt frá árinu 1992 og á þeim tíma verið ómetanlegur hluti af skólasamfélaginu. „Í gegnum árin hefur hún fylgt heilu kynslóðunum í gegnum skólagöngu sína, stutt nemendur og fjölskyldur þeirra, leiðbeint samstarfsfólki og lagt ríkan þátt í uppbyggingu og þróun skólans,“ segir á vef sveitarfélagsins.