
Talþjálfun Vesturlands er nú horfin á braut. Ljósm. TalVest.
Talþjálfun Vesturlands hefur verið lokað
Undir lok maímánaðar var hurðinni að Talþjálfun Vesturlands við Stekkjarholt á Akranesi, TalVest, lokað fyrir fullt og allt. Þjónustan sem innt var af hendi á stofunni fólst í greiningu, þjálfun og ráðgjöf vegna tal- og málmeina og störfuðu tveir menntaðir talmeinafræðingar við stofuna. Þeir hafa nú horfið til annarra starfa.