Hér er horft suður eftir þeim kafla götunnar sem búið er að fjarlægja malbikið af. Ljósm. mm

Endurleggja malbik á Skógarlund á Akranesi

Búið er að fletta malbiki af 350 metra löngum kafla á götunni Skógarlundi í Skógarhverfi á Akranesi. Um nýja götu er að ræða. Eftir að verkframkvæmdum var lokið kom í ljós aflögun í malbikinu á nokkrum stöðum og stóðu m.a. brunnlok upp úr götunni. „Þetta lýsti sér sem misfellur í malbiki sem metið var að mætti rekja til galla við vinnslu undirlags. Borgarverk var verktaki og lagði fyrirtækið til þær úrbætur að fletta malbikinu af, þjappa undirlagið vandlega, hæðarsetja og malbika upp á nýtt, allt á eigin kostnað,“ segir Lárus Ársælsson, umhverfisstjóri hjá Skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar í kjölfar fyrirspurnar Skessuhorns um málið. „Akraneskaupstaður féllst á tillögu verktakans um þessar úrbætur. Ákveðið var að bíða með úrbæturnar í einn vetur og fylgjast með hvort frekari aflögun kæmi fram, sem gerðist ekki. Því var ákveðið að ráðast í framkvæmdina núna í maí og malbikið verður lagt á götuna í framhaldinu,“ segir Lárus.