Fréttir

true

Náðu fjórða sæti á öldungamóti í blaki

Dagana 30. apríl til 2. maí sl. var Öldungamótið í blaki haldið á Akureyri. Kvennalið frá Akranesi tók þátt og náði þar fjórða sæti. Þessar stúlkur voru: Laima Linares Hurtado, Erna Björg Guðlaugsdóttir, Sigríður Helgadóttir, Unnur Tedda Þorgrímsdóttir, Karitas Ósk Ólafsdóttir, Esther Judith Steinsson og Margaret Unger. Þá kemur fram í tilkynningu frá hópnum að…Lesa meira

true

Matarvagn hættir starfsemi á Akranesi

Ákveðið er að matarvagninn Kung fu hættir starfsemi á Akranesi á næstunni. „Öll ævintýri eiga sér upphaf og endi, og nú er komið að leiðarlokum hjá matarvagninum okkar. Við höfum ákveðið að loka Kung Fu og viljum nota tækifærið og þakka ykkur öllum kærlega fyrir samfylgdina og allar góðu stundirnar við vagninn. Við ætlum að…Lesa meira

true

1.106 fengu nýja mynd í albúmið

Fram kemur í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi að 63 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni. Hvorki fleiri né færri en 1.106 ökumenn voru myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og annar fyrir að aka yfir á rauðu…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit mun taka fullan þátt í rekstri Bókasafns Akraness

Í dag skrifuðu fulltrúar Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar undir samstarfssamning um rekstur Bókasafns Akraness. Safnið mun þar með jöfnum höndum þjóna einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit, en markmið samningsins er að veita íbúum Hvalfjarðarsveitar aðgengi að safnkosti og þjónustu safnsins. Í samningnum felst að Hvalfjarðarsveit mun greiða 10% af heildarrekstrarkostnaði safnsins auk…Lesa meira

true

„Reyni að rækta og selja það sem þrífst á svæðinu“

Litið við hjá Jóni í Ræktunarstöðinni Miðvogi á Akranesi Enginn veit með vissu hvað íslenska flóran hefur að geyma margar tegundir af plöntum. Eftir þvísem best er vitað í dag þá finnast um 5.600 villtar tegundir plantna sem vaxa í landinu og á hverjuári finnast einhverjar nýjar tegundir. Jón Guðmundsson, garðyrkjufræðingur, þekkir allt semvið kemur…Lesa meira

true

Fyrsti maí á Snæfellsnesi

Sameyki, Verkalýðsfélag Snæfellinga og Kjölur stóðu fyrir samkomum í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ 1. maí eins og venja er. Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknarstofu vinnumarkaðarins var ræðumaður á öllum stöðum. Þá var boðið uppá tónlistaratriði frá tónlistarskólum staðarins áður en Jón Jónsson kom og skemmti gestum. Að endingu var boðið upp á glæsilegar…Lesa meira

true

Sameiginlegur framboðsfundur á Akranesi annað kvöld

Framboðin sem bjóða fram í kosningum til bæjarstjórnar á Akranesi hafa boðað til sameiginlegs framboðsfundar þar sem oddvitar mæta, kynna sig og sín stefnumál og svara spurningum gesta úr sal. Fundurinn mun fara fram í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi, annað kvöld, fimmtudagskvöldið 7. maí klukkan 20:00 og er öllum opinn. Fundarstjóri verður Magnús Guðmundsson.Lesa meira

true

Átelur þjóðgarðinn fyrir að leyfa bílastæðagræðgi

Leiðsögumaðurinn Björn Júlíus Grímsson hefur sent opna fyrirspurn til Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og snýr að því sem hann kallar bílastæðagræðgi. Birtir hann mynd af gjaldtökuskilti á Malarrifi á Snæfellsnesi. Gefum Birni orðið: „Hvernig stendur á því að í þjóðgarðinum okkar fær þetta sóðalega fyrirtæki Parka að vera með rukkun þar sem þeir haganlega setja inn farþegafjölda…Lesa meira

true

Fyllt í stærstu holurnar

Eins og fram hefur komið virðist sem vegir á landinu komi óvenjulega illa undan vetri. Þar sem burðarlag hefur látið undan síga koma því holur í slitlagið, oft með hvassri brún. Í síðustu viku var unnið við viðgerðir á Vestfjarðavegi nærri Búðardal. Fyrirtækið Balatá í Ólafsvík var þá að aðstoða Vegagerðina við verkið. Alls voru…Lesa meira

true

Allir verðlaunahafar úr Grunnskóla Grundarfjarðar

Stóra upplestrarkeppnin fór fram í Ólafsvíkurkirkju í mars. Þá öttu nemendur af Snæfellsnesi kappi í upplestri og voru margir frambærilegir fyrirlesarar. Það endaði þó þannig að öll verðlaunasætin fóru til nemenda í Grunnskóla Grundarfjarðar sem er nokkuð óvenjulegt. Á meðfylgjandi mynd eru þau Telma Dís sem hafnaði í öðru sæti, Jódís Kristín sem sigraði í…Lesa meira