Fréttir

true

Góð aflabrögð á fyrsta degi strandveiða – myndasyrpa

Strandveiðarnar hófust af krafti í gær og fóru margir bátar til veiða frá Grundarfjarðarhöfn í blíðskaparveðri. Fyrstu bátar voru að koma í land með skammtinn árla morguns og svo komu þeir hver á eftir öðrum það sem eftir lifði dags. Það var því mikið líf og fjör á höfninni þennan fallega mánudag.Lesa meira

true

Sigríður Guðbjörg ráðin í starf aðstoðarskólameistara

Sigríðar Guðbjörg Arnardóttir hefur verið ráðin í starf aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga frá og með 1. ágúst nk. Sigríður Guðbjörg er með BA próf í þroskaþjálfafræðum frá Kennaraháskóla Íslands, viðbótardiplóma í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og M.Ed.-próf í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands. Hún er með kennsluréttindi á leik, grunn- og framhaldsskólastigi. Í…Lesa meira

true

Jólasveinar sem byggðaþróunarverkefni

Ný ráðstefnugrein eftir Önnu Hildi Hildibrandsdóttur kom út í vikunni í tímaritinu Contexto Debates sem gefið er út af Miðstöð félagsvísinda (Centre of Social Science – CES) við Coimbra háskóla í Portúgal. Anna Hildur starfar sem fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst. Greinin nefnist Skapandi frumkvöðlastarfsemi sem drifkraftur byggðaþróunar: Tilviksrannsókn frá Íslandi. Hún byggir…Lesa meira

true

Af félagsstarfi FaB í Brún

Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum stóð fyrir fundi um málefni eldri borgara í Brún síðastliðinn miðvikudag. Á fundinn voru boðaðir fulltrúar þeirra flokka er bjóða fram til sveitarstjórnar Borgarbyggðar við kosningar 16. maí nk.  Öll framboðin sendu fulltrúa sína, en þeir voru: A-listi Hermann Bendsen Valsson, B-listinn Davíð Sigurðsson, D-listinn Sigurður Guðmundsson og M-listinn Þórður Brynjarson.…Lesa meira

true

Byrjað er að rífa Átthagastofuhúsið

Í dag var byrjað að rífa húsið sem manna á meðal í Ólafsvík hefur verið kallað Átthagastofan. Húsið er við Kirkjutún 2, var reist árið 1924, tæpir 185 fermetrar að stærð. Félag um Átthagastofa Snæfellsbæjar var á sínum tíma stofnað um þróunarverkefni til að koma á fót samfélagsmiðstöð þar sem hægt væri að vinna að…Lesa meira

true

Rafhlöður brunnu í gróðrarstöð

Laust eftir hádegi í dag var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út vegna elds í gróðrarstöðinni Narfabakka í Hvalfjarðarsveit. Um tíma var óttast að eldurinn kæmist í nærliggjandi hús og var því einnig kallaður út liðsauki frá Slökkviliði Borgarbyggðar. Eldur hafði komið upp í lithium rafhlöðubanka og brann húsið sem var utan um hann. Á…Lesa meira

true

Bjart yfir veiðimönnum á fyrsta degi strandveiða

Blaðamaður Skessuhorns leit við á höfninni á Akranesi í blíðviðrinu eftir hádegi í dag. Fyrstu strandveiðibátarnir voru þá að koma inn til hafnar. Þar hitti hann fyrir bræðurna Víði og Gulla Pálmasyni, sem gera saman út strandveiðibátinn Örnólf AK. Þeir voru að landa 770 kílóum af stórum og vænum þorski. Þetta er bara flottur fiskur,…Lesa meira

true

Svekkjandi tap í fyrsta leik meistaraflokks kvenna

ÍA konur sóttu HK heim í Kórinn á laugardaginn í fyrsta leik beggja liða á tímabilinu í Lengjudeildinni. Það er óhætt að segja að leikurinn hafi byrjaði með látum og strax á þriðju mínútu kom fyrsta mark leiksins, en það gerði Cally Queen Togiai fyrir HK. Tæpum fjórum mínútum síðar bætti hún við sínu öðru…Lesa meira

true

Stór hópur mætti á kaupstefnu skemmtiferðaskipa

Ríflega 30 manns af landinu tók þátt í skemmtiferðaskipa kaupstefnunni SeaTrade Global sem nýverið fór fram í Miami. Þar voru saman komnir meðlimir Cruise Iceland frá Faxaflóahöfnum, Grundarfjarðarhöfn, höfnum Vesturbyggðar, Ísafjarðar, Skagafjarðar, Hafnasamlagi Norðurlands, hafnir Múlaþings og Vestmannaeyjahöfn. Dekkuðu þær þannig bærilega íslenska ferðaþjónustu hringinn í kringum landið. Þá sóttu kaupstefnuna einnig þjónustuaðilar skemmtiferðaskipa frá…Lesa meira

true

Langþráður sigur Skagamanna

ÍA sótti Stjörnuna heim á Samsungvöllinn í Garðabæ í gær í 5. umferð Bestu deildarinnar hjá meistaraflokki karla. Leikið var í sól og prýðilegu veðri. Fyrir leikinn var ÍA einungis með tvö stig að loknum fjórum umferðum og þurfti svo annarlega á stigum að halda. Skagamenn byrjuðu með boltann og virkuðu áræðnir og frískir í…Lesa meira