Bræðurnir Víðir og Gulli Pálmasynir gera út strandveiðibátinn Örnólf AK. Ljósm. óhk

Bjart yfir veiðimönnum á fyrsta degi strandveiða

Blaðamaður Skessuhorns leit við á höfninni á Akranesi í blíðviðrinu eftir hádegi í dag. Fyrstu strandveiðibátarnir voru þá að koma inn til hafnar. Þar hitti hann fyrir bræðurna Víði og Gulla Pálmasyni, sem gera saman út strandveiðibátinn Örnólf AK. Þeir voru að landa 770 kílóum af stórum og vænum þorski. Þetta er bara flottur fiskur, varð blaðamanni að orði. „Já, þetta er mjög góður fiskur maður og heppnaðist mjög vel þessi túr. Við tókum dagsskammtinn, 770 kíló á skömmum tíma en það er hámarkið fyrir hvern dag. Það er ekki alltaf svoleiðis, stundum þarf að hafa meira fyrir þessu. Við náðum skammtinum á fimm tímum,“ sögðu þeir bræður.