Niðurrifið hófst í dag. Ljósm. af

Byrjað er að rífa Átthagastofuhúsið

Í dag var byrjað að rífa húsið sem manna á meðal í Ólafsvík hefur verið kallað Átthagastofan. Húsið er við Kirkjutún 2, var reist árið 1924, tæpir 185 fermetrar að stærð. Félag um Átthagastofa Snæfellsbæjar var á sínum tíma stofnað um þróunarverkefni til að koma á fót samfélagsmiðstöð þar sem hægt væri að vinna að uppbyggjandi verkefnum fyrir samfélagið. Félaginu var slitið fyrir nokkrum árum enda voru verkefni þess þá flest komin í hendur Snæfellsbæjar. Um tíma var Upplýsingamiðstöð ferðamála í húsinu.