
Bændurnir á Erpsstöðum: Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir. Ljósm. Anna Hildur Hildibrandsdóttir
Jólasveinar sem byggðaþróunarverkefni
Ný ráðstefnugrein eftir Önnu Hildi Hildibrandsdóttur kom út í vikunni í tímaritinu Contexto Debates sem gefið er út af Miðstöð félagsvísinda (Centre of Social Science – CES) við Coimbra háskóla í Portúgal. Anna Hildur starfar sem fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst. Greinin nefnist Skapandi frumkvöðlastarfsemi sem drifkraftur byggðaþróunar: Tilviksrannsókn frá Íslandi. Hún byggir á erindi sem Anna Hildur flutti á ráðstefnu um menningu sem CES stóð fyrir haustið 2024.