
Hér er húsið brunnið og unnið við að slökkva eld í rafhlöðunum. Ljósm. mm
Rafhlöður brunnu í gróðrarstöð
Laust eftir hádegi í dag var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út vegna elds í gróðrarstöðinni Narfabakka í Hvalfjarðarsveit. Um tíma var óttast að eldurinn kæmist í nærliggjandi hús og var því einnig kallaður út liðsauki frá Slökkviliði Borgarbyggðar. Eldur hafði komið upp í lithium rafhlöðubanka og brann húsið sem var utan um hann. Á býlinu er rekin sjálfbær garðyrkjustöð og einungis notast við rafmagn sem framleitt er með sólarsellum á staðnum og geymt í rafhlöðunum. Það tók slökkviliðsfólk talsverðan tíma að slökkva í rafhlöðunum, enda erfitt að eiga við bruna í rafhlöðum af þessu tagi.