Meistaraflokkur kvenna hjá ÍA 2026 – öflugur hópur með mikla breidd. Ljósm. óhk

Svekkjandi tap í fyrsta leik meistaraflokks kvenna

ÍA konur sóttu HK heim í Kórinn á laugardaginn í fyrsta leik beggja liða á tímabilinu í Lengjudeildinni. Það er óhætt að segja að leikurinn hafi byrjaði með látum og strax á þriðju mínútu kom fyrsta mark leiksins, en það gerði Cally Queen Togiai fyrir HK. Tæpum fjórum mínútum síðar bætti hún við sínu öðru marki og staðan orðin 2:0 fyrir HK. Það var síðan á 29. mínútu sem Skagakonur fengu verðskuldað víti og skoraði Erna Björt Elíasdóttir nokkuð örugglega. Þremur mínútum síðar komust HK konur í 3:1 er Henríetta Ágústsdóttir skoraði þriðja mark HK og staðan orðin 3:1 í fyrri hálfleik og við ramman reip að draga fyrir Skagakonur.