Fréttir

true

Stór hópur búfræðinema í námsferð erlendis

Þátttaka búfræðinema Landbúnaðarháskóla Íslands í Erasmus+ hefur tekið stökk síðustu ár og náð nýju hámarki á þessu námsári. Nemendur í búfræðinámi sækja sér alþjóðlega reynslu í mun stærri hópum en áður og fjölgunin í verkefnum er orðin svo afgerandi að hún markar nýtt tímabil í alþjóðavæðingu búfræðináms á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Lionsklúbbur Akraness gefur til sjúkrahússins

Í gærkveldi komu félagar í Lionsklúbbi Akraness saman í matsal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Auk hefðbundinna fundarstarfa var nælt gullmerki í barm Viktors Björnssonar klúbbfélaga. Lionsklúbburinn afhenti Heilbrigðisstofnun Vesturlands veglegar gjafir við þetta tækifæri. Að þessu sinni var gefið Schiller hjartalínuritstæki, Siemens blóðrannsóknatæki, Mach 130 F færanleg vinnuljós og búnaður til aðgerða á blöðruhálskirtli. Heildarvermæti…Lesa meira

true

Sjálfstæðisfólk í Borgarfirði kynnti framboðslista sinn

Sjálfstæðisflokkurinn í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, samþykkti í gær framboðslista fyrir kosningarnar 16. maí á fundi fulltrúaráða flokksins í Mýrasýslu og Borgarfjarðarsýslu. Fundurinn var haldinn í björgunarmiðstöðinni á Fitjum í Borgarnesi. Flokkurinn hefur á þessu kjörtímabili átt tvo fulltrúa í sveitarstjórn. Efstu þrjú sæti listans eru skipuð sama fólki og setið hefur í sveitarstjórn…Lesa meira

true

Leirá dottin í gírinn

Fyrsti sjóbirtingur vorsins kom á land í gær í Leirá í Hvalfjarðarsveit. Fram að því hafði ekki verið hægt að veiða í ánni vegna íss. Að afloknu páskahreti og samhliða hlýnandi veðri lét ísinn fljótt undan. Töluvert vatn er í ánni. Búast má við að áin fari að gefa vel næst daga.Lesa meira

true

Tæplega sexföld eftirspurn eftir kvóta

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn 1. apríl. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 88 gild tilboð um kaup en sölutilboð voru 11. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð sem við lok tilboðsfrests var 428 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 260 kr./ltr. Til sölu voru 624.608 lítrar…Lesa meira

true

Ætla alla leið í Söngkeppni framhaldsskólanna

IceGuys New generation og Krumla verður framlag MB Strákabandið IceGuys New gereration er skipað þremur hressum og hæfileikaríkum strákum í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þetta eru þeir Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson, Þorsteinn Logi Þórðarson og Kristján Karl Hallgrímsson. Þeir tóku þátt í undankeppni MB í janúar fyrir Söngkeppninna og báru sigur úr býtum með lagið…Lesa meira

true

Veðurhorfur fyrir allt landið og færð á Vesturlandi

Svo virðist að næsta lægð verði ekki eins atkvæðamikil og fyrstu spár gerðu ráð fyrir. Á Norður- og Austurlandi verður sunnan- og suðaustan 10-18 m/s og rigning eða skúrir, en bjart með köflum. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld. „Gengur í suðaustan 13-20 með samfelldri rigningu í nótt, fyrst suðvestantil, en suðlæg átt, 8-15…Lesa meira

true

Æfa sig í íslensku á meðan er prjónað

Símenntun Vesturlands og Fjölmenningarskóli Vesturlands hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á námskeið sem ber heitið Prjónað á Íslensku – Knitting in Icelandic. Námskeiðið hefst á morgun, miðvikudaginn 8. apríl, og lýkur 27. maí og fer fram á miðvikudögum frá kl. 18-20. Hópur þátttakenda hittist og prjónar saman á meðan íslenskan er þjálfuð…Lesa meira

true

Dymbilmót í boccia

Mánudaginn 30. mars var haldið boccíamót í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Skráð voru tólf lið til keppni, en ellefu mættu til leiks. Liðin voru frá Húnaþingi-vestra, Akranesi og Borgarbyggð. Keppt var í þremur riðlum, alls 18 leikir. Sigurvegarar í riðlunum kepptu svo sín á milli til úrslita. Úrslitaleikirnir þrír voru spennandi og réðust úrslit ekki fyrir…Lesa meira

true

Háspenna, dramatík og burst í bikarkeppni karla um páskana

Leikið var í 16. umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu um páskana við misgóðar aðstæður, en líkt og landsmenn fundu á eigin skinni var víða fremur rysjótt veðurfar. Þurfti því að færa áætlaða útileiki inn, þar sem því var við komið, en aðrir þurftu að gjöra svo vel að spila úti. Í síðustu umferð duttu bæði…Lesa meira