
Hópur nemenda að kynna sér notkun dróna. Ljósm. LbhÍ/heþ
Stór hópur búfræðinema í námsferð erlendis
Þátttaka búfræðinema Landbúnaðarháskóla Íslands í Erasmus+ hefur tekið stökk síðustu ár og náð nýju hámarki á þessu námsári. Nemendur í búfræðinámi sækja sér alþjóðlega reynslu í mun stærri hópum en áður og fjölgunin í verkefnum er orðin svo afgerandi að hún markar nýtt tímabil í alþjóðavæðingu búfræðináms á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá LbhÍ.